Efling sjúkraþjálfun
Við erum til húsa að Hafnarstræti 97, 3. hæð (Krónunni), Akureyri. 
Efling tók til starfa árið 1996 og þar starfa í dag 18 sjúkraþjálfarar sem allir eru með BSc gráðu, átta af þeim hafa lokið námi við St. Augustine háskólann í Manual therapy (MTc gráða) sem er sérhæfing í greiningu og meðferð á hrygg og útlimaliðum.
Sjúkraþjálfarar Eflingar hafa einnig sérhæft sig í hnykkmeðferð, nálastungumeðferð, íþróttasjúkraþjálfun þ.á.m í forvörnum hnémeiðsla, æfingameðferð gegn þvagleka grindarlosi, sogæðanuddi ofl.
Efling hefur til sölu ýmsar vörur tengdar sjúkraþjálfun og endurhæfingu.
