Meðgöngusundleikfimi – nýtt námskeið hefst mánudaginn 24.október 2022
Meðgöngusundleikfimi
Þjálfun í vatni er ein besta hreyfing sem konur geta stundað á meðgöngu.
Námskeið í meðgöngusundleikfimi hefst mánudaginn 24. október 2022 í sundlaug Akureyrar (innilaug).
Námskeiðin eru fimm vikur og kennt er á miðvikudögum og mánudögum frá kl 16:15-17:00. Verð: 21.500 kr
Námskeiðin henta konum á öllum stigum meðgöngu.
Umsjón með meðgöngusundinu hafa sjúkraþjálfarar á Eflingu sjúkraþjálfun, þær Iðunn, Rósa, Soffía og Þóra.