Nýtt námskeið í meðgöngusundleikfimi hefst mánudaginn 28. september
Þjálfun í vatni er ein besta hreyfing sem konur geta stundað á meðgöngu.
Námskeið í meðgöngusundleikfimi hefst mánudaginn 28. september í sundlaug Akureyrar (innilaug).
Námskeiðin eru fjórar vikur og kennt er á mánudögum og miðvikudögum frá kl 16:10-17:05.
Verð: 15.000 kr
Námskeiðin henta konum á öllum stigum meðgöngu og eftir fæðingu.
Umsjón með meðgöngusundinu hafa sjúkraþjálfarar á Eflingu sjúkraþjálfun, Soffía Einarsdóttir, Þóra Hlynsdóttir, Iðunn E. Bolladóttir og Unnur Lilja Bjarnadóttir
Nánari upplýsingar og skráning á netfanginu medgongusund@eflingehf.is